Meðferð persónuupplýsinga

Öryggi viðskiptavina er mikilvægur þáttur hjá Vett og hjá þeim seljendum sem bjóða upp á þjónustu á vettvangi Vett. Við fylgjum lögum og reglugerðum hvað varðar meðferð persónuupplýsinga. Við eyðum ekki upplýsingum um vörukaup þín fyrr en ábyrgðarfrestur hefur runnið út. Þegar greiðsla fer fram í gegn um heimasíðu okkar eru greiðsluupplýsingar skráðar á öruggu vefsvæði sem tryggir að greiðsluupplýsingar þínar verða óaðgengilegar fyrir óviðkomandi. IP tala þín er skráð við greiðslu pöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.

Hvaða upplýsingar geymir Vett?

1. Upplýsingar tengdar vörukaupum:

Þegar vörukaup eru gerð á vefverslun seljenda á vettvangi Vett ertu beðin(n) um upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang og heimilisfang afgreiðslu eða skráir þig inn með samfélagsmiðli eða google netfangi. Við geymum allar þessar upplýsingar á gagnasvæði okkar sem er vel varið með eldveggjum. Upplýsingarnar eru eingöngu aðgengilegar Vett, félagi, fyrirtæki eða stofnun sem var verslað hjá og samþykktum samstarfsaðilum okkar. Þessar upplýsingar notum við einungis til að geta afgreitt pöntun þína og til þess að geta sinnt þeim málum sem upp kunna að koma varðandi hana. Þú getur hvenær sem er uppfært skráningu þína og valið að hafna skráningu persónuupplýsinga líkt og kveðið er á um í lögum um meðferð persónuupplýsinga. Netfang þitt verður notað í tengslum við afgreiðslu pöntunar þinnar og fer á póstlista Vett. Óskir þú hins vegar eftir því að vera ekki á póstlista Vett þá getur þú afskráð þig með einföldum hætti. Við þurfum ekki símanúmerið þitt, en það er betra að hafa það ef við þurfum að hringja í þig vegna vandamála sem kunna að koma upp við afgreiðslu. Vett og félög á vettvangi Vett skuldbinda sig til að afhenda ekki, selja eða gera upplýsingar sem þú lætur af hendi vegna viðskipta okkar aðgengilegar til þriðja aðila.

2. Upplýsingar vegna áskriftar að fréttabréfi / markaðstengdu efni:

Vett leggur sig fram við að fylgja gildandi lögum og reglum um markaðssetningu. Við innskráningu ertu skráð/ur á póstlista hjá okkur en hafir þú ekki áhuga á slíku getur þú einfaldlega afskráð þig með því að senda tilkynningu þess efnis á vett@vett.is eða með því að fara á vefslóð neðst í tölvupóstinum sem fréttabréfið var sent með. Afskráning af fréttabréfi hefur ekki áhrif á önnur samskipti Vett eða félaga við viðskiptavini s.s. vegna pantana. Upplýsingar um nafn, netfang og póstnúmer hjálpa okkur við að þróa markaðssetningu okkar, þér til hagsbóta. Upplýsingar sem þú gefur okkur geymum við í gagnagrunni á vörðum netþjóni. Eingöngu ábyrgðarmenn vefverslunar félaga, Vett ásamt ábyrgum samstarfsaðilum, hafa aðgang að upplýsingum þínum. Við ábyrgjumst að við munum ekki afhenda eða selja netfang þitt til annarra aðila. Þú hefur möguleika á að afþakka fréttabréf okkar með því að fara á vefslóð neðst í tölvupóstinum sem fréttabréfið var sent með.

Vett notar upplýsingar um viðskiptavini, tækniupplýsingar og markaðsupplýsingar til að tryggja rétta virkni vefsíðu Vett, til að stjórna innihaldi auglýsinga sem birtast viðskiptavinum okkar og til að mæla og skilja áhrif auglýsinga fyrirtækisins. Þessar upplýsingar eru geymdará grundvelli samþykkis sem og lögmætra hagsmuna sem í okkar tilfelli er að veita viðskiptavinum sem allra besta þjónustu, þróa þær þjónustur sem við bjóðum og verja fyrirtækið gagnvart svikum og utanaðkomandi árásum. Við notum einnig þessar upplýsingar til að senda markaðsefni til viðskiptavina og er vinnsla þeirra gagna byggð á samþykki viðskiptavina eða á grundvelli lögmætra hagsmuna.

3. Upplýsingar sem safnast að sjálfu sér:

Heimasíða Vett styðst við vefkökur. Vefkökur eru notaðar til að velja innihald og markaðsefni, einnig til að virkja valmöguleika samfélagsmiðla og til að greina umferð um heimasíðu okkar. Vefkaka er lítil textaskrá sem er geymd í tölvunni þinni. Þetta þýðir í raun að heimasíðan okkar „man“ eftir þér næst þegar þú heimsækir hana og við getum unnið tölfræðilegar upplýsingar um hvernig þú og aðrir sem hana heimsækja nota heimasíðuna. Við heimsókn notenda á vefsvæði Vett áskilur félagið sér rétt til að safna þessum upplýsingum um heimsóknina, þar á meðal tegund vafra, hvaða síður notendur heimsækja innan vefsvæðisins og tímalengd heimsóknar. Þetta er gert til að bæta upplifun notenda af vefsvæðinu, en upplýsingarnar eru ekki greindar frekar niður á einstaka notendur á persónugreinanlegan hátt. Vefsvæði Vett takmarkast við lénið www.vett.is en ekki aðra vefi sem mögulega er vísað af vefsvæðinu eins og til dæmis vefsíður félaga. Vett getur ekki ábyrgst innihald eða meðferð persónuupplýsinga á þeim svæðum. Með því að halda áfram að nota heimasíðuna okkar veitir þú samþykki þitt fyrir kökunum okkar. Upplýsingar um viðskiptavini okkar eru okkur mikilvægar og við munum hvorki selja né afhenda upplýsingarnar til annarra. Allar upplýsingar um þig eru trúnaðarmál milli okkar. Póstur frá þér til okkar fer ekki áfram, nema þú óskir eftir að hann sé áframsendur til viðkomandi aðila. Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlegast hikaðu ekki við að senda okkur póst á vett@vett.is

Persónuverndaryfirlýsing Vett

1. Almennt

Vett er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli fyrirtækið safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

2. Um hverja eru upplýsingarnar?

Í starfsemi fyrirtækisins er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, þá sem eru skráð/ir á póstlista og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við. Fyrirtækið safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því hvaða starfsemi fyrirtækisins er um að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast fyrirtækið við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.

Vett safnar nauðsynlegum upplýsingum um starfsfólk, svo sem upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, samskipti, viðveru, laun og fleira. Einnig þarf fyrirtækið að halda til haga nauðsynlegum tengiliðaupplýsingum, svo sem nafni og netfangi, um starfsmenn viðskiptavina og aðra þriðju aðila. Að auki safnar Vett nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini þegar við á, til dæmis nafni, kennitölu, netfangi, símanúmeri, heimilisfangi og upplýsingum um efni pöntunar. Þá safnar fyrirtækið upplýsingum um netföng þeirra sem hafa ekki afskráð sig af póstlista.

3. Af hverju safnar Vett persónuupplýsingum um þig?

Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

  1. Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðskiptavini.
  2. Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, svo sem með rafrænu eftirliti.
  3. Gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
  4. Uppfylla lagaskyldu.
  5. Kynna ýmislegt sem tengist starfsemi fyrirtækisins, þ.e. þeim aðilum sem eru skráðir á póstlista.

4. Á hvaða lagagrundvelli vinnur Vett persónuupplýsingar um þig?

Fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

  1. Samþykki þínu.
  2. Til að uppfylla samningsskyldu.
  3. Til að uppfylla lagaskyldu.
  4. Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
  5. Til að gæta að lögmætum hagsmunum annarra.

5. Hve lengi geymir Vett persónuupplýsingar um þig?

Fyrirtækið geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

6. Frá hverjum safnar Vett upplýsingum um þig?

Fyrirtækið safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun fyrirtækið eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.

7. Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Vett er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

8. Réttindi þín

Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

9. Öryggi persónuupplýsinga

Vett hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglulega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.

10. Samskiptaupplýsingar Fulls hugar ehf

Nafn: Vett

Heimilisfang: Fosshálsi 27, 110 Reykjavík

Netfang: vett@vett.is

11. Frekari upplýsingar og persónuverndarfulltrúi

Ef þú hefur frekari spurningar um hvernig Vett meðhöndlar þínar persónuupplýsingar, þá sendu okkur endilega póst.

12. Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd

Dragir þú í efa að Vett meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is.)