Aðalfundur Judodeildar 6.mars kl. 19:30.

Aðalfundur Judodeildar 6.mars kl. 19:30.

Aðalfundur Judodeildar Ármanns verður haldinn mánudaginn 6. mars klukkan 19:30 í Judosal Ármanns. 

Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að mæta á aðalfund Judodeildar og taka þátt í að móta starf deildarinnar.

Dagskrá fundarins er:

1. Kosning fundastjóra og fundaritara

2. Stuttar skýrslur
    a. Formanns 
    b. Gjaldkera/framkvæmdastjóra Glímufélagsins

3. Stjórnarkjör
    a. Formaður
    b. Önnur stjórnarstörf

4. Önnur mál