Bandvefslosun - Body Reroll
Hún Hekla Guðmundsdóttir ætlar að koma til okkar og vera með Bandvefslosun/Body Reroll miðvikudaginn 28. september kl. 17:00
Bandvefslosun/Body Reroll er æfingakerfi sem hjálpar þér að líða betur í eigin líkama. Þetta æfingakerfi hentar öllum, allt frá byrjendum til afreksmanna í íþróttum.
Við hvetjum alla til að mæta. Þeir sem eru þegar búnir að greiða æfingargjöld fá frítt, en við biðjum þá að merkja við mætingu í Sportabler.
Aðrir þurfa að skrá sig og greiða sérstaklega fyrir þennan staka tíma. Skráning á https://www.sportabler.com/shop/armann/taekwondo
Hún Hekla heldur úti síðunni bandvefslosun.is þar og á Instagram @bandvefslosun er hægt að skoða æfingarnar og boltana sem eru notaðir. Þeir sem vilja versla bolta fyrir tímann fá sérstakt tilboð.
2 minni saman í neti og 5 cm bolti 6.200kr.
2 minni saman í neti og blöðrubolti 6.200 kr.
2 minni og 2 stærri og netin til að halda þeim saman og blöðrubolti 12.500 kr.
2 minni og netið, 1 stór og blöðrubolti 11.250 kr.
Allar aðrar vörur verða með 15% afslætti.
Sendið skilaboð á okkur ef þið viljið versla bolta fyrir tímann. En hún mætir einnig með bolta sem hægt verður að nota í tímanum. Ef þið eigið svona bolta þá endilega koma með í tímann.