Ármenningar Íslandsmeistarar í frjálsum 11-14 ára
Meistarmót Íslands í frjálsum íþróttum 11-14 ára var haldið í Laugardalshöll helgina 31. janúar - 1. febúar og lið Ármanns sigraði í stigakeppninni með 796,5 stigum sem var 285,5 stigum meira en liðið sem lenti í öðru sæti. Þvílíkt lið sem við eigum! Margir persónulegir sigrar og greinilegt að þau eiga framtíðina fyrir sér.
Sjá fleiri myndir frá mótinu hér.