Ármenningar á fyrstu mótum ársins

Ármenningar á fyrstu mótum ársins

Ármenningar hafa staðið sig vel á fyrstu frjálsíþróttamótum ársins. Á 1. Nike mótinu í Hafnarfirði 7. janúar kepptu þeir Stefán Pálsson og Ivar Josafatsson fyrir Ármann. Stefán gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmetið í 1000m hlaupi í flokki 35-39 ára þegar hann vann hlaupið á tímanum 2:40,54. 

Á MÍ í fjölþrautum innanhúss sem haldið var í Laugardalshöll um síðastliðna helgi keppti Jörundur Þór Hákonarson fyrir Ármann í flokki 16-17 ára pilta. Hann varð í 2. sæti í 60m hlaupi, 60m grind og 1000m hlaupi. Þar að auki bætti hann sig í hástökki með stökk upp á 1,55m og í kúluvarpi þegar hann varpaði kúlunni 7,46m.

MÍ í eldri aldursflokkum var haldið á sama tíma en þar keppti Michel Thor Masselter í 800m hlaupi og 1500m hlaupi í flokki 30-34 ára, Stefán Pálsson í 1500m hlaupi í flokki 35-39 ára, Benedikt Bjarki Ægisson í 200m, 400m, 800m og 1500m hlaupi í flokki 50-54 ára og Halldór Matthíasson í 60m hlaupi, kúluvarpi og stangarstökki í flokki 75-79 ára. Halldór setti tvö aldursflokkamet á mótinu; í 60 m grindahlaupi þegar hann hljóp á 16,11 sek. og í stangarstökki þegar hann stökk 2,00 m.