Ármann heldur 3x3 mót í Laugardalshöll

Ármann heldur 3x3 mót í Laugardalshöll

Það styttist rækilega í að körfuboltaveturinn hefjist og eru æfingar hjá félögunum að fara af stað þessi misserin.

Fyrsta körfuboltamótið fyrir yngri flokka fer fram þann 31. ágúst næstkomandi þegar Ármann heldur 3X3 mót í Laugardalshöllinni fyrir 11-16 ára. Keppni í 3×3 hefur heldur betur rutt sér til rúms síðustu ár en til að mynda var keppt í greininni á Ólympíuleikunum sem er nýlokið.

Mótið fer fram helgina 31. ágúst-1. september næstkomandi og er fyrir árganga 2008-2013. Skráning fer fram á Karfa@armenningar.is og er síðasti séns til að skrá sig 27. ágúst. Skráningagjald er 6000-kr.

Það ætti engin að missa af þessu frábæra tækifæri að hefja körfuboltatímabilið í Höllinni á þessu stórskemmtilega móti.