Aðalfundur frjálsíþróttadeildar

Aðalfundur frjálsíþróttadeildar

Frjálsíþróttadeild Ármanns heldur aðalfund sinn miðvikudagskvöldið 6. mars kl. 20:00 í bíósalnum í Laugardalshöll (salurinn við hliðina á frjálsíþróttarsalnum). Þá er gullið tækifæri fyrir nýtt fólk að koma inn í starfið. Þau sem hafa áhuga á að setjast í stjórn og leggja sitt af mörkum eru endilega beðin um að senda póst á Oddnýju Kristinsdóttur á formadur@frjalsar.is.
Hlökkum til að sjá sem flesta á aðalfundi!