Dómaranámskeið 22. september kl. 18:00

Dómaranámskeið 22. september kl. 18:00

SSÍ ætlar að halda dómaranámskeið fimmtudaginn 22. september kl. 18:00. Að verða dómari er frábær leið til að taka þátt í íþróttum barna og við hvetjum alla sem hefur áhuga til að skrá sig. Hægt er svo að taka verklegan hluta á Turbomótinu okkar 23. og 24. september og þannig taka þátt í mótinu.

"Áætlað er að vera með dómaranámskeið fimmtdaginn 22. september kl 18:00. í húsakynum ÍSÍ.

Bóklegi hlutinn er kláraður á fimmtudeginum og í framhaldi er hægt að taka verklegan hluta á Ármannsmótinu sem verður haldin 23 og 24. sept. eða seinna. Námskeiðið er einn bóklegur hluti sem tekur uþb. 2 1/2klst, þar sem farið er yfir sundreglur og fleira sem við kemur sundmótum og svo þarf að starfa tvo mótshluta í verklegri þjálfun til að verða dómaranemi.

Til að verða almennur dómari þarf safna 40 punktum á 12 mánaðar tímabili, dómaranemar á landsbyggðinni fá lengri tíma til að safna punktum.

Við skráningu á námskeiðið er óskað eftir upplýsingum um nafn, kennitölu, gsm og hvaða félag viðkomandi tengist. Skila þarf inn skráningu á dómaranámskeið á netfangið: igga@L54.is 

Með von um frábæra þáttöku, 

Dómarnefnd SSÍ"